ORKUGJAFAR
Á myndinni má sjá orkunotkun Íslendinga árið 1999 eftir orkugjöfum. Jarðhiti og vatnsorka sjá fyrir 68% af allri orkunotkun landsmanna, en 32% er mætt með innflutningi jarðefnaeldsneytis. Af 850.000 tonnum af bensíni og olíu, sem flutt voru inn á árinu, voru 57% notuð til að knýja bíla- og fiskiskipaflota landsmanna.
Við sjáum að Ísland er í frekar óvenjulegri stöðu, ef litið er til nágrannalanda okkar (Grænland,Svíþjóð,Danmörk,Færeyjar og fl.). Þótt aðeins lítill hluti af orkulindum landsins hafi verið virkjaður er 32% af orkunotkuninni mætt með innflutningi eldsneytis. Þrjár gerðir orkugjafa sjá fyrir næstum allri orkuþörf Íslendinga. Jarðhiti er nýttur til raforkuframleiðslu og húshitunar, vatnsafl til raforkuframleiðslu, og innflutt olía til að knýja fiskiskip og farartæki. Til eru fleiri orkugjafar, til dæmis vindur, lífmassi, sjávarföll, öldur og sólarorka. Þessir orkugjafar
eru lítið nýttir af ýmsum orsökum. Margir hinna óhefðbundnu orkugjafa eru óreglulegir í eðli sínu t.d. vind- og ölduorka. Aðrir eru reglulegir, en ójafnir eins og t.d. sjávarföll. Aðrir dreifðir eins og lífmassinn að miklu leyti eða of
dýrir í samanburði við hefðbundnu orkugjafana. Þó geta komið upp aðstæður þar sem hagkvæmt er að nota þessa orkugjafa í einhverjum mæli.

INNRÆN ÖFL
|
ÚTRÆN ÖFL
|